Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi hreyfináms hjá börnum á öllum aldri.
- hvert markmiðið er með hreyfinámi barna á leik- og grunnskólaaldri og hvaða áhrif markvisst hreyfinám hefur á þroska þeirra.
- þroskaþáttum, flokkun þeirra og samspili.
- helstu skynfærum líkamans og samspili þeirra.
- flokkun hreyfináms í gróf- og fínhreyfingar.
- æskilegum áherslum í hreyfinámi hjá ólíkum aldurshópum barna.
- þeim fjölbreyttu möguleikum sem felast í hreyfinámi hvort sem er í íþróttasal, skólastofu, sundlaug eða utandyra.
- hvað þroskapróf er, hvað felst í hugtakinu hreyfivandi og hvernig greina megi frávik frá eðlilegum líkams- og hreyfiþroska.
- hvað áætlanagerð er og hvernig skipuleggja eigi hreyfinám.
- gildi hreyfináms fyrir fatlaða og áhersluþáttum í kennslu fatlaðra..
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tengja saman aldur og æskilega hreyfigetu barna.
- skipuleggja hreyfistund út frá markmiðum og æskilegum áherslum grundvallaða á aldri og aldurstengdum hreyfi- og líkamsþroska.
- velja æfingar og leiki sem efla valda þroskaþætti og grunnþætti skynjunar.
- aðstoða við framkvæmd eða skipuleggja upp á eigin spýtur hreyfistund hvort sem hún er í sal, stofu, utandyra eða laug.
- flétta saman gróf- og fínhreyfingar í hreyfinámi.
- aðstoða við framkvæmd þroskaprófs og átta sig á frávikum frá eðlilegum líkams- og hreyfiþroska.
- aðstoða nemendur með sérþarfir í hreyfinámi.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- rökstyðja mikilvægi hreyfináms fyrir börn á öllum aldri og miðla því til aðstandenda og annarra starfsmanna á vinnustað. Metið með fyrirlestrum og verkefnum.
- skilja á milli gróf- og fínhreyfinga og nýta sér það við skipulagningu hreyfináms sem metið er með æfingavali í verklegu námi og verkefnum.
- vera virkur þátttakandi í skipulagningu hreyfistunda og geta sýnt frumkvæði við val á æfingum og rökstutt það út frá aldri og þroskastigi barna. Metið með verkskipulagi, útsjónarsemi og vinnuframlagi í verklegum kennslustundum og verkefnum.
- gera sér grein fyrir því þegar börn eiga við hreyfivanda að stríða og sýna frumkvæði við að vekja athygli samstarfsfólks á því. Metið og þjálfað með könnun á hreyfinámi barna í íþróttaskóla í formi vettvangsferðar og mati á börnum í nánasta umhverfi .
- vinna með og aðstoða nemendur með sérþarfir í hreyfinámi og nýta til þess þekkingu um skipulag og aðferðafræði við sérkennslu sem metið er með kynningum og verkefnum.