Lýsing
Í áfanganum er unnið að því að gera nemendur meðvitaða um fjármál, peninga og hlutverk þeirra í daglegu lífi. Farið er í laun og frádrátt og hvert hann fer, rekstur heimilis og bíls, notkun greiðslukorta, gengi og gjaldeyri og fleira sem snertir fjárhagslegar skuldbindingar sem nemendur þurfa að takast á hendur. Einnig verður farið í heimilisbókhald og mikilvægi þess að halda utan um tekjur og gjöld. Fjölbreyttar kennsluaðferðir eru notaðar í áfanganum svo sem leikir, umræður og verkefnavinna, bæði einstaklings- og hópa. Markmið áfangans er að gera nemendur sjálfbjarga í raunverulegum aðstæðum.
Einingar 2
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Einföldum fjármálum daglegs lífs
- Lestri launaseðla og annarra fjármálatengdra skjala
- Tilgangi skatta og annars frádráttar
- Rekstri heimilis og bifreiðar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Reikna gróflega útborgun launa eftir skatt
- Gera sér grein fyrir daglegum kostnaði, t.d. fæði og húsnæði
- Leita sér upplýsinga sem aðstoðar hann við nauðsynlega útreikninga
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Gera sér grein fyrir mikilvægi peninga
- Skilja tilgang skatta og gjalda og hvernig þeir nýtast okkur
- Skilja mikilvægi þess að tekjur séu hærri en gjöld
- Tileinki sér ábyrgð á eigin fjármálum og átti sig á að tekjur og gjöld verða að standast á