Lýsing
Skoðað verður á gagnrýnan hátt hvernig samskiptatæki fjölmiðlar eru og áhersla verður á að gera nemendur meðvitaða um mikilvægi, gildi og siðfræði og þær hættur sem tengjast fjölmiðlum nútímans. Áhersla er á læsi í víðu samhengi og miðast vinnuferlið við að efla færni og sjálfsmynd nemenda til að takast á við lífið. Leitast er við að styrkja nemendur til aðverða gagnrýnir, virkir þátttakendur í jafnréttis- og lýðræðissamfélagi.
Einingar 2
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Helstu tegundum fjölmiðla
- Hugtakinu tjáningarfrelsi
- Gildi fjölmiðla í lýðræðissamfélagi
- Hættum sem tengjast fjölmiðlum nútímans
- Hugtakinu læsi í víðu samhengi
- Mikilvægi tjáningar og hlustunar
- Ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
- Mismunandi tjáskiptaleiðum
- Tilfinningum sínum og skilja orð og hugtök sem þeim tengjast
- Styrkleikum sínum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Nálgast mismunandi fjölmiðla óháð miðlunarformi
- Draga aðalatriði út mismunandi fréttatilkynningum
- Endursegja eða endurflytja afmarkað efni
- Nýta sér fjölmiðla sér til gagns og/eða gleði
- Nýta sér upplýsingar úr umhverfinu
- Tjá sig fyrir framan aðra
- Athöfnum daglegs lífs
- Taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir
- Virða skoðanir annarra
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Vera meðvitaður um styrkleika, veikleika og hættur fjölmiðla
- Tjá sig um ýmis málefni sem fram koma í fjölmiðlum
- Nýta sér upplýsingar frá fjölmiðlum á gagnrýnan hátt
- Aðgreina auglýsingar frá öðru sem kemur fram í fjölmiðlum
- Nýta styrkleika sína á jákvæðan og uppbyggilegan hátt
- Nýta sér læsi í víðu samhengi
- Hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- Tjá eigin skoðanir
- Lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni