Lýsing
Áhersla er á lýðræði og aðstæður og umhverfi ungs fólks skoðað í fjölbreyttu samhengi. Nemandinn er hvattur til að velta fyrir sér hugtakinu lýðræði og taka afstöðu til siðferðilegra álitamála, s.s. mannréttinda, samábyrgðar, meðvitundar og virkni borgara við að móta samfélag sitt og hafa áhrif á það.
Einingar 2
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtökunum tengdum lýðræði
- mikilvægi sjálfstæðis og sjálfsábyrgðar í lýðræðissamfélagi
- að allir hafa hæfileika og þroskamöguleika
- að í lýðræðisríki þurfa borgarar að búa við mannréttindi og komast að samkomulagi
- eigin tilfinningum og skoðunum
- fjölbreytileika
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita gagnrýninni hugsun
- virða skoðanir annarra
- taka þátt í umræðum
- láta skoðanir sínar í ljós
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja þá hugsun sem felst í hugtökunum tengdum lýðræði
- spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- átta sig á tengingu á milli réttinda og skyldna
- taka þátt í lýðræðissamfélagi á virkan og ábyrgan hátt