Lýsing
Í áfanganum er farið í lyfjaskrár, ATC-flokkunarkerfi lyfja, geymslu og fyrningu lyfja, lyfjaform og ýmsar skilgreiningar sem tengjast lyfjum. Farið er í helstu lyf sem notuð eru við hjarta- og æðsjúkdómum, geðsjúkdómum, stoðkerfissjúkdómum,öndunarfærasjúkdómum, húðsjúkdómum og sykursýki. Auk þess er fjallað um sýklalyf, meltingarfæralyf og lyf við Alzheimer sjúkdómi. Fjallað er um lyf og lyfjaflokka, verkun lyfjanna, aukaverkanir, milliverkanir o.fl.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- uppbyggingu sérlyfjaskrár
- ATC-flokkunarkerfi lyfja
- ýmsum algengum skilgreiningum sem tengjast lyfjum
- hugtökum sem notuð eru varðandi frásog, dreifingu, umbrot og útskilnað lyfja
- helstu lyfjaformum, kostum þeirra og göllum
- áhrifum hjarta- og æðasjúkdómalyfja, geðlyfja, verkjalyfja, öndunarfæralyfja, húðlyfja og sykursýkislyfja
- helstu flokkum og áhrifum sýklalyfja, meltingarfæralyfja og lyfja við Alzheimer sjúkdómi
- helstu auka- og milliverkunum ofangreindra lyfja
- blóðþéttnikúrfum.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leita að upplýsingum um lyf á netinu
- flokka sérlyf eftir ATC-flokkunarkerfinu
- reikna út helmingunartíma lyfja
- aðstoða skjólstæðinga við notkun á ýmsum lyfjaformum, þar sem við á.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- miðla algengum upplýsingum um ofangreind lyf til skjólstæðinga þar sem við á
- átta sig á tengslum aukaverkana lyfja við verkun þeirra
- sýna skilning á verkun ofangreindra lyfja með tilliti til verkunarmáta þeirra.