Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnhráefnum og nýtingu þeirra til matargerðar.
- meðferð hráefnis
- næringar- og orkuinnihaldi matvæla
- hreinlæti og vinnubrögðum við matreiðslu
- meðhöndlun, umgengni og meðferð matvæla
- mikilvægi þess að ganga vel um vélar, tæki og handverkfæri
- viðbrögðum við fyrstu hjálp og mikilvægi öryggismála og vellíðunar á vinnustað
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- almennum aðferðum og verklagi í matreiðslu á hefðbundnum heimilismat
- meðhöndla hráefni með hliðsjón af mismunandi matreiðsluaðferðum
- meta næringargildi máltíða
- beita hnífum, handverkfærum og tækjum í eldhúsi
- að beita aðferðum og vinna eftir skipulögðum verkferlum sem koma í veg fyrir dreifingu og fjölgun örvera ímatvælum
- greina og lesa einfaldar uppskrifir og framleiðsluleiðbeiningar og fylgt þeim eftir undir handleiðslu tilsjónarmanns ávinnustað og/eða kennara
- þekkja takmörk sín í mateiðslu og vinna í hópi
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja matreiðsluaðferðir sem hæfa hráefninu hverju sinni...sem er metið með...verklegum æfingum
- skipulagt og eldað máltíð út frá næringargildi, hollustu og ráðlögðum dagsskammti...sem er metið með...verklegumæfingum
- vera sjálfbjarga í almennri eldamennsku...sem er metið með...verklegum æfingum
- nýta hráefni á sjálfbæran og hagkvæman hátt...sem er metið með...verklegum æfingum
- forgangsraða einföldum verkþáttum og tryggja eðlilegt flæði verkferla...sem er metið með...verklegum æfingum
- skilja mikilvægi þess að bera virðingu fyrir umhverfinu og því hráefni sem unnið er með...sem er metið með...verklegum æfingum
- Nýta þekkingu sína til að elda fjölbreytilegan mat...sem er metið með...verklegum æfingum
- Nemandi þjálfast í skapandi umræðu um matreiðslu og orðfæri greinarinnar....sem er metið með...verklegum æfingum
- Getur hagnýtt upplýsingatækni og stærðfræðiþekkingu við lausn verkefna tengd matreiðslu....sem er metið með...verklegum æfingum