Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hlutverki næringarefnanna, dagsþörfum einstaklinga og skortseinkennum.
- ráðleggingum um mataræði og næringarefni fyrir almenning.
- rannsóknum á mataræði Íslendinga.
- tengslum næringar við sjúkdóma og heilsu fólks.
- næringu fyrir sérstaka hópa fólks, svo sem ungbörn, þungaðar konur, aldraða og íþróttafólk.
- sérfæði fyrir sjúklinga.
- innihaldslýsingum matvæla og merkingum um næringargildi.
- samsetningu matseðla og hvernig hægt er að reikna út orku og næringarefnainnihald.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta ráðleggingar um mataræði og næringarefni til að setja saman matseðla og skipuleggja eigið mataræði.
- afla sér áreiðanlegra upplýsinga í sambandi við heilsusamlegt mataræði.
- lesa innihaldslýsingar og næringargildislýsingar matvæla.
- reikna út orku og næringarinnihald matvæla.
- setja saman matseðla fyrir mismunandi hópa fólks.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja sér heilsusamlegt mataræði sem metið er með matardagbókum, verkefnum og skriflegu prófi.
- útskýra munnlegar og myndrænar ráðleggingar um mataræði og næringarefni fyrir öðrum sem metið er með umræðum og rökstuðningi.
- meta áreiðanleika upplýsinga um heilsusamlegt mataræði sem metið er með umræðum, rökræðum og upplýsingaleit.
- meta hollustugildi matvæla út frá innihaldslýsingum og næringargildislýsingum sem metið er með búðarheimsókn, verklegum æfingum og umræðu.
- skipuleggja heilsusamlegt mataræði fyrir mismunandi hópa fólks sem metið er með matseðlagerð, útreikningum á mataræði og kynningum nemenda.