NÁSS1ÁM02

Lýsing

Í áfanganum þjálfist nemendur í að átta sig á eigin áhugasviðum og styrkleikum. Nemendur taka áhugakönnun. Nemendurkynnist námi- og störfum í gegnum upplýsingaöflun og miðli til annarra nemenda. Nemendur kynnist þeim náms- ogstarfsmöguleikum sem þeim standa til boða. Nemendur fái þjálfun í notkun upplýsingaveita er snúa að náms- og starfsvali.

Einingar 2

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • eigin áhugasviðum og styrkleikum
  • markmiðsetningu og ákvarðanatöku sem tengjast vali á námi og störfum
  • ýmsum leiðum í náms- og starfsvali
  • kynbundnu náms- og starfsvali
  • hefðbundnum og rafrænum upplýsingasíðum
  • margmiðlunartækni í náms- og starfsvali

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • gera sér grein fyrir eigin áhugasviðum
  • skoða eigin markmiðsetningu og ákvarðanatöku út frá eigin áhugasviði
  • afla sér upplýsinga um námsframboð í framhaldsskóla og geta valið nám við hæfi
  • afla sér upplýsinga um störf í nærumhverfi
  • gera sér grein fyrir áhrifum kyns á vali á námi- og starfi
  • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í leit að námi og starfi

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • gera sér grein fyrir hvað þarf að skoða við markmiðsetningu og ákvarðanatöku
  • vera ábyrgur í náms- og starfsvali
  • þekkja möguleika til starfs í nærumhverfi
  • nýta sér upplýsingaveitur um nám- og störf á veraldarvefnum