Lýsing
Í áfanganum verður námsskipulag og almenn starfsemi skólans kynnt s.s. námsleiðir, umsjón, þjónusta og stoðkerfi. Nemendur læra að átta sig á eigin námsaðferðum og hvað sé vænlegt til árangurs fyrir hvern og einn. Nemendur skoða eigin áhugasvið og styrkleika og taka áhugasviðskönnun. Nemendur kynnist námi og störfum í gegnum upplýsingaöflun, læra að gera ferilskrá og sækja um störf.
Einingar 3
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- námsleiðum skólans
- árangursríkum námsaðferðum
- eigin styrkleikum og áhugasviðum
- markmiðssetningu og ákvarðanatöku sem tengjast vali á námi og störfum
- ýmsum leiðum í náms- og starfsvali
- kynbundnu náms- og starfsvali
- hefðbundnum og rafrænum upplýsingasíðum
- margmiðlunartækni í náms- og starfsvali
- uppbyggingu ferilskráa og náms- og starfsumsókna
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta sér árangursríkar námsaðferðir
- skilja eigin áhugasvið og styrkleika
- setja sér markmið út frá styrkleikum og áhugasviði
- afla sér upplýsinga um námsframboð og geta valið nám við hæfi
- afla sér upplýsinga um störf í nærumhverfi
- nota upplýsingartækni og hjálpargögn í leit að námi og starfi
- gera ferilskrá og sækja um nám eða starf
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nota skipulögð vinnubrögð í námi
- vera ábyrgur í náms- og starfsvali út frá styrkleikum og áhugasviði
- nýta upplýsingarveitur um nám og störf á veraldarvefnum
- sækja um nám og störf