Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- vinnumarkaði, sérstaklega vinnumarkaði nærumhverfisins
- réttindum og skyldum á vinnumarkaði
- hvernig á að leita að starfi
- hvernig á að gera starfsferilskrá
- hvernig á að gera Europass ferilskrá
- hvernig á að sækja um starf
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skoða vinnumarkaðinn
- þekkja réttindi og skyldur á vinnumarkaði
- nota upplýsingatækni og hjálpargögn í leit að námi og starfi
- gera starfsferilskrá
- búa til Europass ferilskrá
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vera virkur í atvinnuleit
- skilja hvernig starfsferilskrá nýtis á vinnumarkaði
- nýta sér starfstengdar upplýsingaveitur sem má finna á veraldarvefnum
- geta sótt um starf