Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu grundvallarhugtökum mæli- og reglunartækninnar
- þeim lögmálum sem liggja til grundvallar helstu mæliaðferðum
- uppbyggingu algengra mælitækja sem notuð eru í reglunartækni
- eiginleikum mismunandi reglunaraðferða og notkunarsviði þeirra
- uppbyggingu og notkun á reglum sem nota orkuformin rafmagn, þrýstivökvi og þrýstiloft
- eiginleikum mismunandi reglunartaka út frá hugtökunum mögnun, tímastuðull og dátími
- gerð og uppbyggingu gangráða
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa teikningar af reglum og gera sér grein fyrir heildarmyndinni
- stilla af PID stilli með viðurkenndum aðferðum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera sér grein fyrir hvaða áhrif stillingar á P, I og D gildum hafa
- útskýra hvernig breyting einni eðlisstærð hefur áhrif á aðra