Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnhugtökum virkrar skilyrðingar.
- atferlisgreiningu.
- ólíkum tegundum umbunarkerfa.
- gildi og beitingu jákvæðrar styrkingar og hvað ber að hafa í huga við val á styrkjum og beitingu þeirra.
- ólíkum tegundum aðferða til að draga úr hegðun, eins og áminningum, tímahléi, hunsun og slokknun.
- leiðum til að gera samninga um hegðun við börn og unglinga.
- siðferðislegum álitamálum sem koma upp við beitingu atferlismótunar.
- ólíkum tegundum atferlismótandi kerfa.
- gildi jákvæðra viðhorfa og virðingar gagnvart einstaklingum sem unnið er með.
- grunnhugtökum viðbragðsskilyrðingar.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina aðdraganda, hegðun og afleiðingar hegðunar út frá tilbúnum og raunverulegum dæmum.
- beita aðferðum eins og markvissri jákvæðri athygli til að auka eftirsóknarverða hegðun í samskiptum við börn og unglinga.
- beita aðferðum til að draga úr óæskilegri hegðun.
- skrá, mæla og skilgreina hegðun fyrir og eftir íhlutun.
- greina hvaða þættir viðhalda óæskilegri hegðun.
- fjalla um hugtök, gildi og hagnýtingu atferlismótunar í daglegu lífi.
- ræða álitamál í tengslum við refsingar í atferlismótun
- smíða og beita umbunarkerfi.
- greina þau áreiti og viðbrögð sem eiga sér stað í viðbragðsskilyrðingu.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- draga úr óæskilegri hegðun og auka eftirsóknarverða hegðun sem metið er með leiðsagnarmati.
- gera sér grein fyrir gildi jákvæðra viðhorfa og virðingar gagnvart einstaklingum sem metið er með leiðsagnarmati og mati á samskiptahæfni.
- setja skýr mörk og fylgja þeim eftir.
- sjá kosti og ókosti mismunandi aðferða í atferlismótun og geta þar af leiðandi valið viðeigandi aðferðir eftir aðstæðum.
- rökstyðja og draga ályktanir um siðferðileg álitamál tengd atferlismótun.
- nýta sér atferlismótandi atferðir á starfsvettvangi og heima sem metið er með leiðsagnarmati kynningum.