Lýsing
Áfanginn er ætlaður nemendum á framhaldsskólaprófsbraut. Hér er nemendum ætlað að kynnast nærumhverfi sínu og þámeð áherslu á lykilhæfni aðalnámskrár framhaldsskóla. Sérstaklega verður lögð áhersla á menntun til sjálfbærni, sem oglæsis, tjáningar og samskipta í íslensku og tölum. Rýnt verður í hvaðeina er staðhættir, náttúra og atvinnulíf ínærumhvefinu hefur að bjóða og síðan sett í í víðara samhengi.
Einingar 3
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Staðháttum, heitum, örnefnum í nánasta umhverfi.
- Helstu þáttum atvinnulífs og afkomumöguleikum í heimabyggð
- Samspili manns og umhverfis, áhrifum gjörða mannsins á náttúruna.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Afla sér upplýsinga um hvaðeina í nærumhverfi og heimfæra á aðstæður í víðara samhengi.
- Setja fram viðkomandi upplýsingar í ræðu og riti.
- Greina ógnir og tækifæri í samskiptum manns og náttúru.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Geta leiðsagt gestum og gangandi um það sem fyrir augu ber í nánasta umhverfi.
- Geta útlistað á hverju afkoma og tilvera nærsamfélagsins bggist.
- Greina ógnir og tækifæri í samskiptum manns og náttúru.