STÆR1DD05

Lýsing

Nemendur fást við útreikninga og stærðfræðileg hugtök sem notuð eru í daglegu lífi. Þeir læra að reikna ýmis dæmi tengd innkaupum og kostnaði við rekstur heimilis. Verkefnin hafa beina skírskotun til margvíslegra þjónustustarfa. Í þeim eru notuð hugtök reiknifræði og stærðfræði, s.s. tölur og talnafræði, reikniaðgerðir, hlutföll, prósentur, tölfræði, mælikvarðar,flatarmál og rúmmál. Kennd verður notkun töflureiknis við lausn dæma.

Einingar 5

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • talnakerfinu, reikniaðgerðum, hlutföllum, prósentum, vaxtareikningi og tölfræði í gegnum áhorf, lestur, hlustun, umræðu eða önnur samskipti.
  • töflureikni og öðrum notkunarmöguleikum tölvutækninnar við framsetningu og úrvinnslu tölulegra gagna.
  • mælikvörðum og grunnreglum um flatarmál og rúmmál.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina almenna þekkingu sína í stærðfræði þannig að hann beiti viðeigandi aðferðum við lausnir.
  • miðla almennri þekkingu sinni með mismunandi aðferðum, skriflega, munnlega eða verklega.
  • nota táknmál og orðaforða stærðfræðinnar til að miðla þekkingu sinni.
  • tengja saman almenn stærðfræðileg hugtök og myndrænt efni og geta greint og hagnýtt upplýsingar sem birtast í fjölmiðlum þar sem stærðfræði kemur við sögu hvort sem það er skrifað, talað, myndrænt eða stafrænt.
  • beita reiknivél af öryggi.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita viðeigandi aðferðum við lausnir sem metið er í ferilmöppu nemanda.
  • miðla almennri þekkingu sinni með mismunandi aðferðum, skriflega, munnlega (geta kynnt niðurstöður sínar fyrir öðrum nemendum og kennara) eða verklega sem metið er við kynningu verkefna og í hópvinnu og skráð skv.viðmiðunartöflu.
  • nota táknmál og orðaforða stærðfræðinnar til að miðla þekkingu sinni sem metið er í hópstarfi skv. marklista.
  • tengja saman almenn stærðfræðileg hugtök og myndrænt efni og greina og hagnýta upplýsingar sem birtast í fjölmiðlum þar sem stærðfræði kemur við sögu hvort sem þær eru skriflegar, munnlegar, myndrænar eða stafrænar. Þessi þáttur er metinn í skýrslugerð og hópvinnuskilum skv. viðmiðunartöflu.
  • beita reiknivél af öryggi sem metið er með skriflegum prófum.
  • beita innsæi og skapandi hugsun í leit að úrlausnum sem metið er í vinnuferlum í ferilmöppu skv. marklista.