Lýsing
Áhersla verður á tímahugtök og unnið verður með þau á fjölbreyttan hátt, s.s. í gegnum verkefnavinnu, veraldarvefinn og verklegar æfingar, t.d. að fara í strætó. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Einingar 3
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Algengum tímahugtökum
- Vikudögum
- Mánuðum
- Dagsetningum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Lesa í og/eða nýta sér dagatal
- Lesa á klukku
- Breyta dagsetningu úr rituðu máli yfir í tölustafi
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Nýta sér tímahugtök í daglegu lífi
- Átta sig á árstíðum og þeim mánuðum sem tilheyra hverri árstíð
- Nýta sér viðeigandi stuðningstæki þegar það á við, s.s. dagatal
- Vera stundvís