Lýsing
Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslum og lausnum verkefna og þrauta. Meginviðfangsefni eru upprifjun á talnameðferð, einföld algebra og jöfnur. Enn fremur er fjallað um hnitakerfið, jöfnu beinnar línu og hlutfallshugtakið. Fallhugtakið er kynnt og ýmis föll athuguð með hjálp reiknitækja.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Talnameðferð og talnareikningi
- Forgangsröð aðgerða og algengustu stærðfræðitáknum
- Heiltöluveldum
- Notkun tákna í stað talna
- Undirstöðuatriðum algebru, s.s. liðun, þáttun og vinnu með einföld algebrubrot
- Lausn fyrsta stigs jafna
- Lausn jöfnuhneppa með tveimur óþekktum stærðum
- Prósentu- og hlutfallareikningi
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Vinna á nákvæman og skipulagðan hátt með tölur og táknmál stærðfræðinnar
- Forgangsraða aðgerðum bæði í talnareikningi og algebru
- Beita undirstöðuatriðum algebru til að liða, þátta og vinna með einföld algebrubrot
- Leysa fyrsta stigs jöfnur með einni eða tveimur óþekktum stærðum
- Einangra eina stærð úr fyrsta stigs jöfnu með mörgum óþekktum stærðum
- Vinna með hlutföll og leysa einföld prósentudæmi
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Setja margs konar verkefni upp með táknmáli stærðfræðinnar og leysa þau
- Beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna og rökstyðja aðferðir sínar
- Skrá lausnir sínar skipulega og skiptast á skoðunum um þær við aðra
- Átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu
- Vinna með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu
- Beita frumkvæði, innsæi og frumleika við lausn verkefna