Lýsing
Unnið verður með útreikninga og stærðfræðileg hugtök sem nýtast nemendum í daglegu lífi. Dæmi um viðfangsefni eru tölur, samlagning, frádráttur, margföldun og deiling. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Einingar 3
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Undirstöðuatriðum í reikningsaðgerðum
- Mikilvægi stærðfræðinnar í daglegu lífi
- Notkunarmöguleikum vasareiknis
- Finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Nota vasareikni
- Nota algeng stærðfræðitákn
- Finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
- Fylgja fyrirmælum sem gefin eru
- Beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu