Lýsing
Í áfanganum er fjallað um rúmfræði með teikningum, tölfræði, líkindareikning og viðskiptareikning. Helstu efnisatriði: •Grundvallarhugtök og reglur í evklíðskri rúmfræði. • Mælingar í rúmfræði og mikilvægi nákvæmi • Grunnatriði tölfræði og líkindareiknings: Myndrit, meðaltal, miðgildi, tíðasta gildi, staðalfrávik, spönnun, einföld líkindi og fleira • Talningaraðferðir,flokkun gagnasafna og framsetning niðurstaðna • Viðskiptareikningur: Prósentur, álagning, afsláttur, virðisaukaskattur,vextir, vísitölur og fleira • Hagnýt verkefni um notkun viðskiptareiknings
Einingar 5
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grundvallarhugtökum og reglum í evklíðskri rúmfræði, tölfræði, líkindareikningi og viðskiptareikningi
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- setja fram lausnir á táknmáli stærðfræðinnar
- leysa rúmfræðileg verkefni og beita teikniáhöldum
- flokka talnasöfn, lesa úr myndritum og skýra einkennisstærðir talnasafna
- setja upp og túlka gögn á myndrænu formi
- reikna einföld líkindi atburða og meta áhættu við ákvarðanatöku
- reikna prósentur, vexti og vísitölu
- nota vísindalegar reiknivélar og stærðfræðiforrit á netinu.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega, ræða þær við aðra og útskýra hugmyndir sínar og verk
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu á tölulegum viðfangsefnum
- vega og meta tölulegar upplýsingar á gagnrýninn hátt
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- taka ákvarðanir í sértækum verkefnum er lúta að efni áfangans
- klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leyst þau og túlkað lausnirnar