Lýsing
Meginefni áfangans er hornaföll, vigrar og keilusnið. Sérstök áhersla er lögð á sannanir og skýra og rétta stærðfræðilega framsetningu. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Hornaföll: Hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi, hornafallareglur, almenn skilgreining hornafalla, umritanir með hornaföllum, hornafallajöfnur og ójöfnur, gröf hornafalla, bogamál. Vigrar: Vigrar í sléttum fleti, samlagning, lengd, samsíða og hornréttir vigrar, hnit, innfeldi, horn milli vigra, miðpunktur striks. Keilusnið: Hringir, sporbaugar, fleygbogar og breiðbogar.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hornaföllum, vigrum og keilusniðum, s.s. að framan greinir
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- finna lengdir og horn í rétthyrndum og órétthyrndum þríhyrningum og flatarmál þeirra
- einfalda og umrita stæður sem innihalda hornaföll og leysa hornafallajöfnur og ójöfnur
- finna lotu, útslag og hliðrun hornafalla og teikna gröf þeirra eða lesa úr gröfum
- breyta gráðum í bogamál og öfugt
- beita helstu reiknireglum vigurreiknings, t.d. að finna hnit vigra, lengd þeirra, innfeldi tveggja vigra og horn milli vigra
- finna miðju og radíus hrings út frá jöfnu hans, eða öfugt, m.a. með því að fylla í ferninginn og vinna á samsvarandi hátt með jöfnur sporbauga og breiðboga
- sanna einfaldar reglur
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- geta valið þær aðferðir sem við eiga hverju sinni til að leysa verkefni og beita þeim rétt
- skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega fyrir öðrum
- geta fylgt og skilið röksemdafærslu í mæltu máli og í texta
- leysa margvísleg viðfangsefni í öðrum námsgreinum og daglegu lífi