STAF3ÞJ27

Lýsing

Starfsþjálfun sjúkraliðanema er áfangi með námslokum á 3. þrepi og er 27 feiningar. Áfanginn er reynslutími fyrir sjúkraliðanema á heilbrigðisstofnun og stendur yfir í 16 vikur (80 vaktir). Á tímabilinu öðlast nemandinn hæfni og sjálfstæði í störfum sjúkraliða undir handleiðslu reyndra sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga. Við lok námsins í áfanganum skal nemandi búa yfir almennri og sérhæfðri þekkingu, leikni og hæfni til þess að vinna hjúkrunar- og umönnunarstörf á faglegan hátt. Heimilt er að skipta starfsþjálfun niður í tvö til þrjú tímabil, en þjálfunin skal þó vera samfelld á hverju tímabili og lágmarksvinnuhlutfall ekki fara undir 60%. Nemandi skal áður en hann fer í starfsþjálfun fá samþykki skóla fyrirnámsstaðnum og skrifa undir námssamning ásamt fulltrúa skóla og ábyrgðaraðila á námsstað. Að loknu námi í VINN2LS08 er nema heimilt að ljúka fimm vikum af starfsþjálfuninni. Nemandi skal alfarið fylgja þeim reglum sem viðkomandi heilbrigðisstofnun setur sínu starfsfólki.

Einingar 27

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • faglegum grunni hjúkrunarstarfa
  • mikilvægi samskipta og samvinnu í störfum sjúkraliða
  • vinnuumhverfi og starfssviði sjúkraliða
  • siðareglum sjúkraliða
  • lögum og reglugerðum sem tengjast störfum sjúkraliða.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita faglegum vinnubrögðum í sjúkraliðastarfinu
  • nýta samskiptahæfni við margvíslegar aðstæður
  • taka þátt í þverfaglegu samstarfi
  • starfa eftir siðareglum, sýna siðferðisvitund, fordómaleysi, umburðarlyndi og víðsýni í störfum sínum
  • vinna eftir gæðaviðmiðum heilbrigðisstofnana.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • yfirfæra og samþætta fræðilega þekkingu að sjúkraliðastarfinu
  • beita innsæi, gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn hjúkrunarviðfangsefna
  • vera fær um að vinna sjálfstætt og bregðast við margvíslegum aðstæðum í sjúkraliðastarfinu
  • beita, rökstyðja og ígrunda þær hjúkrunarmeðferðir sem hann framkvæmir samkvæmt hjúkrunaráætlun hverju sinni
  • sýna hæfni í samskiptum við ólíka einstaklinga með ólíkar þarfir
  • tileinka sér nýjungar og þróa sig í starfi.