Lýsing
Starfsnám gefur nemendum tækifæri til þess að kynna sér ýmis störf og mismunandi vinnustaði. Námið felur í sér að nemendur þjálfist í að beita mismunandi aðferðum og verklagi. Starfsnám fer fram í skóla og á vinnustað. Með því að tengja námið við vinnustaði öðlast nemendur oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður skýrari. Að auki undirbúa nemendur að útskrift að vori.
Einingar 4
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Fjölbreyttum vinnustöðum
- Fjölbreyttum starfsheitum
- Mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum
- Skipulagningu útskriftar
- Hvaða möguleika hann hafi til frekara náms
- Hvað þurfi til að búa í sjálfstæðri búsetu
- Hvað það þýðir að vera virkur og ábyrgur þátttakandi í lýðræðissamfélagi
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
- Mæta til vinnu á réttum tíma
- Fylgja fyrirmælum
- Fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
- Fylgja samskiptareglum á vinnustað
- Fylgja öryggisreglum á vinnustað
- Undirbúa og skipuleggja merkisviðburði eins og útskrift
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Taka þátt í atvinnulífinu
- Hafa yfirsýn yfir mismunandi störf og starfsvettvang
- Tilheyra starfsmannahópi
- Búa til eigin ferilskrá
- Undirbúa og skipuleggja merkisviðburði eins og útskrift
- Meta möguleika sína hvað varðar nám, atvinnu, búsetu og áhugamál
- Skipuleggja heimilishald