STAR1VF02

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Námið er að hluta til bóklegt nám og að hluta til fer námið fram í vettvangsferðum. Farið verður yfir samskiptareglur, öryggis og umhverfismál, réttindi og skyldur og hættur í umhverfinu. Í vettvangsferðum kynnast nemendur helstu atvinnutækifærum í umhverfinu og þeim möguleikum sem þau bjóða upp á m.t.t. atvinnuþátttöku.

Einingar 2

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Fjölbreyttum vinnustöðum í nærumhverfinu
  • Tilgangi starfs og mikilvægi þess í tengslum við önnur störf
  • Viðeigandi framkomu í vettvangsferðum
  • Hættum sem geta verið í starfsumhverfinu

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Að fara í vettvangsferðir og kynna sér sérsvið hvers staðar
  • Sækja sér upplýsingar um nýja og framandi vinnustaði

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Þekkja mismunandi vettvangsstaði og átta sig á hlutverkum þeirra
  • Mikilvægi þess að mæta stundvíslega
  • Fara í vettvangsferðir út frá námslegum markmiðum