STAÞ1UN05

Lýsing

Í áfanganum fer fram kynning og verkleg þjálfun á ýmsum störfum í nærumhverfinu. Nemandinn fær tækifæri til að aðvinna á vinnustað/stöðum og starfa á honum undir leiðsögn.

Einingar 5

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mismunandi vinnustöðum
  • ábyrgð og skyldum þess að vera starfsmaður á vinnustað
  • eigin áhugasviðum og styrkleikum sem starfsmaður
  • mikilvægi þess að sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • almennum reglum vinnumarkaðsins og vinnuumhverfis
  • öryggis og aðbúnaði fyrir starfsmenn á vinnustöðum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita aðferðum sem leiða til betri vinnubragða í starfi
  • þekkja eigin styrkleika til mismunandi starfa
  • nýta reynslu og yfirsýn námsins í starfsvali síðar
  • vinna sjálfstætt og í hópi
  • leita að vinnu á almennum markaði
  • yfirfæra lærða færni á raunverulegar aðstæður

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja hvernig hægt er að öðlast sjálfstæði í vinnubrögðum
  • skilja hvað þarf til að geta valið sér starf við hæfi
  • skilja eigin styrkleika og áhugasvið þegar kemur að starfsvali
  • skilja skyldur og ábyrgð þess að vera starfsmaður og á vinnumarkaði
  • geta verið hluti af heild á vinnustað
  • stunda áframhaldandi nám