Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- verksviðum fagsins.
- öryggis- og umhverfisatriðum sem snerta fagið.
- gæðakröfum sem snerta fagið.
- efnum og áhöldum sem tilheyra faginu.
- upplýsingaöflun sem viðkemur faginu og nýtist við þróun í starfi.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- fylgja hönnunargögnum.
- vinna í samræmi við gildi og stefnu vinnustaðar.
- vinna með hliðsjón af gæðakröfum og viðurkenndu verklagi.
- vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað.
- beita fjölbreyttum aðferðum til að ná markmiðum í starfi.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vinna sjálfstætt að verkefnum sem tilheyra faginu.
- vinna hratt og af nákvæmni.
- meta eigin verk og annarra.
- nota áhöld og tæki og sinna viðhaldi á þeim.
- beita sér rétt við vinnu.
- sýna þjónustulund og góða umgengni og umhirðu á vinnustað.
- fylgjast með nýjungum innan fagsins og vaxa í starfi.