UMSJ1PT01

Lýsing

Í áfanganum er verið að treysta persónuleg tengsl nemenda við kennara og nám- og starfsráðgjafa. Farið verður yfir réttindi og skyldur nemenda á framhaldsskólabraut og kynnt fyrir nemendum hvar vænta megi aðstoðar og úrlausna ef eitthvað kemur uppá. Sérstök áhersla á að byggja upp traust á milli nemenda og umsjónarkennara og nemenda og náms-og starfsráðgjafa.

Einingar 1

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • að umsjónarkennari er trúnaðarmaður nemenda í skólanum auk náms- og starfsráðgjafa
  • að einkaviðtöl og hópfundir á milli nemenda og kennara/náms- og starfsráðgjafa treysta persónuleg tengsl
  • hvar hægt er að fá aðstoð innan skólans
  • réttindum og skyldum nemenda í framhaldsskóla
  • umsjón og aðhaldi skólans

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tjá sig við umsjónarkennara/náms- og starfsráðgjafa
  • kunna skil á réttindum sínum og skyldum sem nemandi
  • mæta í skólann og skila verkefnum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • gera sér grein fyrir að hægt er að leita sér aðstoðar ef með þarf
  • skilja að umsjónarkennari og náms- og starfsráðgjafi eru til staðar fyrir nemendur
  • gera sér grein fyrir að góð ástundun er undirbúningur fyrir nám- og störf í framtíðinni
  • gera sér grein fyrir að aðhald og umsjón er til að styðja við ástundun og framfarir í námi