Lýsing
Fræðigreinin kynnt og fjallað er um rætur hennar, sögu og hagnýtingu. Hugtakið uppeldi er skoðað og rætt. Hin ólíku viðhorf til mannlegs eðlis eru tekin til umfjöllunar í ljósi kenninga um menntun og uppeldi. Þróun uppeldis- og menntunarviðhorfa í Evrópu er lauslega kynnt og kenningar frumkvöðla innan greinarinnar. Fjallað er um gildi bóklestrar,lista, íþrótta, og leiks í uppeldi sem og notkun barna og unglinga á stafrænum miðlum og áhrif fjölmiðla. Kynhlutverk,uppeldi og samskipti barna og foreldra er einnig tekið til umræðu.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- uppeldis- og menntunarfræði sem fræðigrein og þróun hennar
- helstu hugtök og kenningar frumkvöðla innan greinarinnar
- leiðum uppeldisfræðinnar til að útskýra þroskaferil barna og unglinga
- ýmsum þáttum sem hafa áhrif á uppeldi og menntun
- niðurstöðum rannsókna á mismunandi uppeldisaðferðum foreldra
- rannsóknaraðferðum í félagsvísindum með höfuðáherslu á kannanir og vettvangsathuganir.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- taka þátt í samvinnunámi og hópavinnu
- gerð rannsóknaritgerða
- að sýna frumkvæði
- taka þátt í umræðum um málefni
- að beita ólíkum aðferðum í upplýsingaöflun
- afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
- miðla fræðilegu efni skýrt og skilmerkilega í ræðu og riti
- að halda fyrirlestra og kynna efni munnlega fyrir samnemendum
- meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leggja sjálfur gagnrýnið mat á hvað er vænlegt til árangurs í uppeldi barna
- geta hagnýtt sér kenningar í raunhæfum verkefnum
- meta siðferðileg álitamál í tengslum við uppeldi og menntun
- framkvæma og vinna úr könnunum á fræðilegan hátt