Lýsing
Í áfanganum er fjallað um ýmis svið uppeldis og mennta á Íslandi. Nemendur skoða hugmyndafræði og markmið leik-,grunn- og framhaldsskóla og vinna verkefni sem tengjast þessum skólastigum. Einnig verkefni sem tengjast forvörnum, fjölmenningu, áhrif dægurmenningu og tómstundir barna og unglinga. Ýmsir áhrifaþættir í uppeldi eru skoðaðir svo sem kynhlutverk, sorg og viðbrögð við áföllum, skilnaður, einelti og ofbeldi. Áhersla er lögð á lýðræðislega kennsluhætti og ábyrgð, virkni og áhuga nemenda.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- aðalnámskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla og helstu lögum sem fjalla um þessi skólastig, ólíka hugmyndafræði innan menntakerfisins og hugtök uppeldis- og menntunarfræðinnar
- áhrifum fyrirmynda á börn og unglinga sem og félagsmótandi áhrif auglýsinga, fjölmiðla og dægurmenningu
- tómstundafræði sem faggrein og ýmsum leiðum til forvarna
- viðbrögðum barna og unglinga við erfiðleikum og mögulegum áhrif á líf og hegðun þeirra
- mikilvægi jafnréttis, lýðræðis og mannréttinda í námi og lífi barna og unglinga.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skipuleggja og framkvæma verkefni á ýmsum sviðum innan fagsins og beita hugtökum og kenningum á uppeldis-og menntunarfræðileg viðfangsefni
- greina ýmsa þætti í umhverfinu sem hafi áhrif á líf barna og unglinga og geti skoðað sína eigin hegðun og annarra út frá grundvallarhugmyndum uppeldisfræðinnar
- sækja sér upplýsingar, greina og vinna með þær og deila með öðrum á fjölbreyttan hátt
- beita sjálfstæðum vinnubrögðum og vera í samvinnu við aðra og geti metið sitt eigið vinnuframlag sem og annarra.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vinna á faglegan og ábyrgan hátt verkefni sem tengjast námsefni áfangans og tjáð sig skipulega og faglega um uppeldisleg álitamál
- hafa jákvæð áhrif á umhverfi sitt. Að þeir geti sett sig í spor annarra og átt samskipti við börn á ábyrgan og farsælan hátt
- sjá uppeldis- og menntunarfræðileg hugðarefni út frá mismunandi kenningarlegum sjónarhornum og tekið gagnrýna afstöðu til álitamála á því sviði
- geta metið á gagnrýninn hátt menningarlegt efni sem ætlað er börnum og unglingum
- taka ábyrgð á eigin námi og séu bæði virkir og áhugasamir