UPPT1NT02

Lýsing

Í áfanganum fá nemendur kynningu á notkunarmöguleikum tölvunnar og fræðast um örugga netnotkun og óskrifaðar og skrifaðar reglur á samskiptavefjum og bloggsvæðum. Áhersla verður á að búa til tölvunetfang og að senda tölvupóst. Farið verður í ritun á ýmsum tegundum af tölvupósti og muninum á formlegum og óformlegum texta í tölvupóstsamskiptum. Skoðaðar verða ýmsar samskiptareglur tengdar tölvupóstsamskiptum t.d. hvað hástafir í texta geta þýtt og greinarmerki. Einnig er komið inn á hvernig tölvupósti ætti ekki að svara og rætt um allskyns hættur sem mikilvægt er að varast. Þar að auki verða grunnatriði í heimildaleit á veraldarvefnum kennd.

Einingar 2

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Að tölvur eru stór hluti af lífi okkar
  • Mikilvægi þess að fylgja ákveðnum umgengisreglum við tölvunotkun
  • Mikilvægi þess að vanda tölvusamskipti eins og önnur samskipti
  • Mikilvægi þess að vanda tölvusamskipti eins og önnur samskipti, því að það er ekki allt satt og rétt sem sett er á veraldarvefinn
  • Eðli og áræðanleika mismunandi heimilda á veraldavefnum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Að greina á milli þess hversu áreiðanlegar upplýsingar eru á netinu
  • Að nýta sér netið á öruggan og ánægjulegan hátt
  • Vinna með texta sem hann hefur lesið og/eða hlustað á
  • Nota samskiptavefi á borð við facebook á sem öruggastan hátt
  • Útbúa og nota sitt eigið netfang
  • Tjá sig í rituðu máli
  • Nýta sér leiðréttingarforrit þegar ritaður er tölvupóstur
  • Nýta sér veraldarvefinn í upplýsingaöflun

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram á síðum eins og SAFT og öðrum síðum sem kenna örugga netnotkun
  • Auka sjálfstraust sitt og trú á eigin tölvulæsi
  • Hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • Lesa í leik-og samskiptareglur, umhverfi og tilfinningar í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
  • Þekkja muninn á því sem er raunverulegt og óraunverulegt
  • Að nýta sér tölvupóst sem einn af mörgum samskiptamátum
  • Notkun veraldavefsins í leit að heimildum og upplýsingum