Lýsing
Unnið verður með grunnatriði ritvinnslu og töflureikni. Áhersla verður á forritin Microsoft Word og Excel og notkunarmöguleikar þeirra kynntir en einnig önnur forrit eftir áhuga og aðstæðum.
Einingar 2
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Framsetningu texta í rituðu skjali
- Ritun á stuttum textum
- Mikilvægi þess að kunna að setja upp aðgengilegan texta og skjöl af ýmsu tagi
- Uppsetningu efnis í ritvinnslu og töflureikni
- Hvernig nota skal ritvinnslu og töflureikni til að koma upplýsingum á framfæri
- Mikilvægi þess að vanda framsetningu upplýsinga og heimilda
- Að það má alltaf bæta við kunnáttu sína á þessu sviði
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Vinna með ritvinnslu- og töflureikna
- Leita mismunandi leiða í vinnuferlinu
- Skipuleggja, afla, flokka, vinna úr og miðla upplýsingum á gagnrýninn hátt
- Meðhöndla heimildir á gagnrýninn hátt við upplýsingaöflun af netinu
- Nota hjálpartexta og leiðbeiningar við notkun forrita
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Senda frá sér vel upp sett skjöl og ritaðan texta
- Efla sjálfstraust sitt
- Setja upp og skrifa ritgerðir í ritvinnsluforriti
- Nota ritvinnsluforrit og töflureikni við skýrslugerð
- Samtvinna notkun ritvinnslu og töflureiknis
- Afla, vinna úr og miðla gögnum og upplýsingum á gagnrýninn og skapandi hátt
- Koma hugmyndum sínum á framfæri