UPPT1UV02

Lýsing

Í áfanganum kynnast nemendur einfaldri vefsíðugerð.

Einingar 2

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • einfaldri vefsíðugerð

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna í þeim hugbúnaði sem kennt er á
  • fylgja fyrirmælum við vinnslu verkefna í viðkomandi hugbúnaði
  • setja upp og ljúka verkefnum samkvæmt fyrirmælum
  • vista skjöl sem hann vinnur með á viðeigandi stað
  • leita að gögnum og meta gæði þeirra
  • forrita einfaldar vefsíður með texta og myndum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nota þann hugbúnað sem kennt er á á sjálfstæðan hátt
  • nýta hugbúnaðinn við aðrar aðstæður, í skóla og starfi
  • finna upplýsingar og gögn sem nýtast honum í námi og starfi
  • búa til einfaldar vefsíður