Lýsing
Unnið verður með auka færni nemenda í notkun á verkfærum innan upplýsingartækni sem nemandinn hefur áhuga á að vinna áfram með. Leitast verður eftir að vinna með frumkvæði og sköpunarkraft hvers og eins.
Einingar 2
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- notkun forrita og tæknilegra verkfæra innan upplýsingatækninar á áhugasviði hvers og eins
- notkunarmöguleikum ólíkra tækja
- hvernig nota má ólíkar aðferðir til að leysa verkefni
- mikilvægi þess að vanda framsetningu
- því að það má alltaf bæta við kunnáttu sína á þessu sviði
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna með forrit og önnur tæki upplýsingatækninnar
- leita mismunandi leiða í vinnuferlinu
- skipuleggja, afla, flokka, vinna úr og miðla upplýsingum á gagnrýninn hátt
- meðhöndla heimildir á gagnrýninn hátt við upplýsingaöflun af netinu
- nota hjálpartexta og leiðbeiningar við notkun forrita
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- efla sjálfstraust sitt á notkun upplýsingartækni
- framsetja niðurstöður úr vinnu sinni á skilmerkilegan og snyrtilegan hátt
- afla, vinna úr og miðla gögnum og upplýsingum á gagnrýninn og skapandi hátt
- koma hugmyndum sínum á framfæri