Lýsing
Nemandi fer í sex vikna vinnustaðanám á viðurkenndum starfsnámsstað. Hann skal kynnast markmiðum, áætlunum, skipulagi og daglegum störfum á vettvangi. Einnig skal hann kynnast starfslýsingum ásamt þeim lögum og reglugerðum sem starfslýsing byggist á. Nemandi skráir pælingarbók um verkefni áfangans og gerir skýrslu um reynslu sína og viðfangsefni. Í upphafi tímabilsins fær hann kynningu á starfseminni og smám saman verður hann þátttakandi eftir því sem aðstæður leyfa. Jafnhliða námi á vinnustað sækir nemandi vikulega bóklega tíma í skóla þar sem fjallað er um tengingar á milli fræða og fags, t.d. mikilvægi góðra samskipta og hvað einkennir góðan starfsmann, siðareglur eru kynntar ásamt mismunandi starfslýsingum.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mismunandi störfum innan fagsins.
- mikilvægi starfslýsinga.
- réttindum og skyldum sem starfinu fylgja.
- daglegum verkefnum viðkomandi vinnustaða.
- mikilvægi skipulags starfs, t.d. dagskipulagi.
- mikilvægi trúnaðar og þagnarskyldu starfsfólks.
- mikilvægi virðingar fyrir samstarfsfólki og skjólstæðingum.
- mismunandi viðhorfum fólks til lífsgæða.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina starfslýsingar og gildi þeirra.
- meta gildi reglna og reglugerða sem tengjast starfinu.
- sinna þeim verkefnum sem þeim eru falin á viðkomandi vinnustað.
- lesa og skilja dagskipulag vinnustaða.
- virða trúnað og þagnarskyldu.
- bera virðingu fyrir öðrum.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vinna einföld störf á sínum starfsvettvangi sem metið er með dagbók og umræðum í skóla og handleiðsluviðtölum á vinnustað.
- vinna afmörkuð störf eftir starfslýsingu sem metið er með dagbók og umræðum í skóla og handleiðsluviðtölum á vinnustað.
- vinna eftir reglum vinnustaðarins sem metið er með dagbókarskrifum og umræðum.
- leysa þau verkefni sem honum eru falin af ábyrgð og samviskusemi sem metið er með handleiðsluviðtölum á vinnustað.
- vinna samkvæmt dagskipulagi vinnustaða sem metið er með dagbókum og handleiðsluviðtölum á vinnustað.
- virða trúnað og þagnarskyldu í starfi sem metið er með umræðum og verkefnum.
- sýna fólki virðingu á vinnustaðnum sem metið er með handleiðsluviðtölum á vinnustað.
- skilja og virða mismunandi viðhorf fólks til lífsgæða sem metið er með rökræðum í málstofu og verkefnum.