Lýsing
Nemandi fer í sex vikna vinnustaðanám á viðurkenndum starfsnámsstað. Gert er ráð fyrir að vinnustaðanámið fari fram á einum stað til að tryggja að nemandinn kynnist starfinu vel og hafi náð faglegri hæfni í viðkomandi starfi. Nemandi fær þjálfun í að vinna eftir markmiðum, áætlunum og skipulagi viðkomandi starfsstaðar og reynslu í að vinna samkvæmt viðeigandi starfslýsingu. Hann fær þjálfun í að vinna markvisst og sjálfstætt eftir verkáætlun ásamt því að búa sjálfur til dagsáætlun. Gert er ráð fyrir að hann fái að taka þátt í þverfaglegri teymisvinnu vegna skipulags deildar/vinnueiningar og/eða vegna einstaklingsmála. Jafnhliða vinnustaðanámi sækir nemandi vikulega bóklega tíma í skóla þar sem fjallað er um tengingar á milli fræða og fags, þ.e. fagmennsku, siðareglur, starfslýsingar og fleira.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fagmennsku viðkomandi starfa.
- mikilvægi siðareglna í starfi.
- tengingu fræða og fags.
- gildi skipulagðra vinnubragða.
- mikilvægi skammtíma og langtíma verkáætlana.
- mikilvægi góðs starfsanda og samskipta á vinnustað.
- mikilvægi þess að skrá upplýsingar og gera skýrslur.
- lagalegum og siðferðislegum reglum sem gilda um meðferð persónuupplýsinga.
- störfum annarra starfstétta sem vinna að svipuðum stöfum.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita fagmennsku í starfi.
- skipuleggja starf sitt og setja fram verkáætlanir.
- skilja og túlka siðareglur.
- yfirfæra fræðilega þekkingu úr bóklegu námi á starfsvettvang.
- starfa með öðrum og taka þátt í teymisvinnu.
- virða trúnaðarskjöl og persónulegar upplýsingar.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- bera ábyrgð á afmörkuðum verkefnum sem metið er af vinnustaðanámskennara í handleiðsluviðtali.
- beita fagmennsku í starfi sem metið er af vinnustaðanámskennara í handleiðsluviðtali.
- beita í hvívetna siðareglum í daglegum störfum sem metið er af vinnustaðanámskennara í handleiðsluviðtali og með skriflegum verkefnum.
- vinna faglega á grundvelli fræðilegrar þekkingar sem metið er í málstofu með jafningjamati og verkefnum.
- vinna skipulega samkvæmt verkáætlunum sem metið er með viðtali og verkefnum.
- sýna virkni og frumkvæði í hópa- og teymisvinnu sem metið er af vinnustaðanámskennara í handleiðsluviðtali.
- vinna að ýmsum skráningum sem tengjast starfinu og skýrslugerð sem metið er með viðtali og verkefnum.
- meðhöndla af ábyrgð trúnaðarskjöl og persónulegar upplýsingar sem metið er með viðtali og verkefnum