Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- nýtni og afldreifingu miðflóttakraftsdælu
- dælukennilínum, mótstöðukennilínum og stjórnun rúmtaksstreymis fyrir miðflóttaaflsdælu
- rannsóknum á varmafræðilegum eiginleikum varmaskiptis
- varmajöfnuði dísilvéla
- álagslínuriti aðalvélar skips
- skrúfulínuriti
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota díagrammrannsóknir til að greina bilanir í dieselvélum
- gera varmajöfnuð á dieselvél og leggja mat á niðurstöður
- lesa úr niðurstöðum varmajöfnuðar og varmaskipta vélbúnaðar
- setja niðurstöður mælinga og athugana fram í skýrsluformi
- afla upplýsinga um ástand lofttemprunarkerfa og vinna úr þeim
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka ákvarðanir um viðbrögð ef niðurstöður mælinga á vélbúnaði gefa tilefni til
- setja fram helstu atriði æfingarinnar og niðurstöður í skýrslu þar sem fram koma helstu mæliniðurstöður,útreikningar, línurit
- draga ályktanir af niðurstöðum rannsóknaræfinga og gera tillögur að úrbótum