Lýsing
Lýsing – áfanganum er skipt í fjóra ólíka þætti sem snúa að rafmagni, timbri, málmi og hársnyrtifræðum. Írafmagnshlutanum verða grunnatriði í rafmagnsfræðum og útreikningum kennd. Farið verður yfir öryggismál og hættur/slysaf völdum rafmagns sem og notkun rafmagns í daglegu lífi. Nemandi lærir um rafkerfi íbúðarhúsnæðis ogorkuþörf/orkukostnað. Nemandi kynnist jafnstraumrás í bifreiðum og meðferð rafgeyma. Nemandi fær að tengja klær ogsetja saman fjöltengi. • Í timburhlutanum verða grunnatriði trésmíða kennd, farið verður yfir helstu viðartegundir, eiginleikaþeirra, notkunargildi og nemendum kynntir möguleikar á vinnslu úr tré. Lögð verður áhersla á notkun hand- ografmagnshandverkfæra, s.s. við val og umhirðu, stillingar og brýnnslu og öryggisþætti er snerta þessi verkfæri. Nemendurkynnast notkun algengra tegunda viðarlíms, trésamsetninga, pússningar og yfirborðsmeðferð viðar. • Í málmhlutanum er farið í öryggismál, persónuhlífar, meðhöndlun verkfæra , verkfæranotkun með tilliti til eldvarna, eldvarnarbúnaður, mottur,tæki og efnisinnihald. Nemendur fá kynningu á ýmsum verkfærum s.s handverkfæri til heimabrúks, læra að þekkjaverkfæriheiti, tilgang þeirra og notkun. Þá fá nemendur einnig að kynnast málmsuðu. Farið verður í mælingar, notkuntommustokka, málbands og skífumál og farið verður yfir algengustu bolta og gengjur. Þónokkuð verður um verklegaræfingar s.s. mig/mag suða. Þá verður tekið ýmislegt sem snýr að biðreiðum s.s. lyfta bíl og skipta um hjólbarða, pumpað íhjólbarða, minniháttar viðgerð á vélbúnaði með aðstoð handbóka, spóntaka/borun, vélbúnaðarefirlit/olíuhæð/kælivatn. • Íhársnyrtihlutanum fá nemendur kennslu í umhirðu hárs og húðar, grunn í rúlluísetningu og permanenti. Farið verður ígrunn í uppsetningu á síðu hári, s.s fléttur og hnútar. Meðhöndlun á hitajárnum eins og sléttun og krullun á síðu hári.Einnig verður kynnt fyrir nemendum hugmyndafræðina á bakvið klippingar og hárlitun og þeim sýnd kennslumyndbönd í tenglsum við það.
Einingar 2
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- almennum varnarráðstöfunum í umgengni við rafmagn, timbur og málm
- helstu viðar- og málmtegundum sem notaðar eru við hin ýmsu verkefni
- kostum og göllum hinna ýmsu viðar- og málmtegunda
- umhirðu hárs og húðar
- takmörkun mismunandi tækjabúnaðar m.t.t efnisvals
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tengja saman klær og setja saman fjöltengi
- velja viðeigandi verkfæri og tækjabúnað m.t.t framkvæmdarinnar
- geta skipulagt og framkvæmt eigin hugmyndir
- vera verklega sjálfbjarga í daglegu lífi
- vinna með mismunandi hárgreiðslur
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta greint hvort tilskyldum reglum sé fylgt eftir varðandi öryggismál
- geta tengt þekkingu sína og leikni við daglegt líf