Háskóladagurinn 15. mars

Háskóladagurinn verður með kynningu í Menntaskólanum á Egilsstöðum miðvikudaginn 15. mars kl. 11:00 til 13:00.

Allir háskólar landsins kynna námsframboð sitt, sem telur yfir 500 námsleiðir, og námsráðgjafar verða á staðnum.

Langar þig í háskólanám? Ef svarið er já, þá viltu ekki missa af þessu einstaka tækifæri.

Allir velkomnir!

Nemendur VA hvattir til að taka þátt og kynna sér námsframboð háskólanna. Rúta fer frá VA kl. 10 (nemendum að kostnaðarlausu). Skráning á skrifstofu skólans fyrir hádegi á þriðjudag.