Aðgengi að skólanum - leiðbeiningar 5. október 2020

Takmarkað aðgengi að skólanum - gildir frá og með 5. október til og með 19. október 2020

Vegna sóttvarnaráðstafana er nauðsynlegt að takmarka aðgengi að skólanum.

  • Þeir sem eiga erindi inn í skólann þurfa að hafa samband við skrifstofu skólans í síma 477 1620 eða va@va.is
  • Sama á við um nemendur sem þurfa að komast inn í skólann, s.s. til að nálgast eitthvað úr skápum sínum eða bækur af bókasafni skólans. 
  • Módel mega koma inn í háriðndeild skv. bókunum. Gæta þarf að öllum smitvörnum. Módelin þurfa að spritta hendur og setja upp grímur strax í anddyri skólans.