GLU 104 Gluggar og útihurðir

GLU104 Gluggar og útihurðir

Undanfarar: TRÉ109 og VTS103


Smíði glugga og útihurða með áherslu á trésamsetningar, vélavinnu og handverk. Viðartegundir og önnur smíðaefni sem notuð eru í glugga og útihurðir, áhöld og tæki, samsetningaraðferðir, yfirborðsmeðferð og smíðisfestingar. Lögð er áhersla á að nemendur geti gengið úr skugga um gæði þeirra smíðaefna sem unnið er með og að endanlegur smíðishlutur uppfylli kröfur um málsetningar, útlit m.m. Þjálfun í notkun og umgengni við allar algengar trésmíðavélar og kynning á flóknari vélbúnaði sem sérstaklega tengist glugga- og hurðasmíði. Áfanginn er ætlaður bæði húsasmiðum og húsgagnasmiðum.