HAG 103 Hagfræði

HAG103
 
Undanfari: Enginn
Rekstrarhagfræði 1
Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um rekstur fyrirtækja og umhverfi þeirra. Fjallað er um grunnatriði hagfræðinnar og skilgreiningar á mismunandi efnahagsheildum. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist yfirsýn yfir fyrirtæki sem efnahagsheild og hvernig það þrífst í samkeppni við önnur fyrirtæki. Til þess að nemendur öðlist skilning á eðli og uppbyggingu fyrirtækja er farið yfir helstu þætti er varða innra skipulag og ytri aðstæður fyrirtækja. Einnig læra nemendur að flokka atvinnugreinar, kynnast umhverfi og starfsgrundvelli fyrirtækja, stefnumótun og markmiðssetningu, kostnaðargreiningu og grunnþáttum markaðsfræði og bókhalds. Lögð er áhersla á að nemendur nýti þá þekkingu sem þeir hafa af eigin reynslu í atvinnulífinu, taki dæmi þaðan og beri námsefnið saman við eigin reynslu. Fyrir utan hefðbundin kennslugögn er ætlast til að nemendur geti nýtt sér Netið til upplýsingaöflunar.