Málm- og véltæknideild - leiðbeiningar 5. október

Grunnám málm- og véltæknigreina og vélstjórnarbraut tilheyra sóttvarnahólfi 4.

Inngangur í hólf 4 er að sunnanverðu verknámshúsi (beint inn í deildina), fyrir tíma í stofu 22 á annarri hæð er gengið inn um brunainngang að sunnanverðu verknámshúsi.

Athugið að búið er að skipta setustofu í anddyri upp í tvö hólf með tilliti til aðgangs að salernum og nemendur er ekki heimilt að fara á milli hólfa.

Nemendur í deildinni munu einnig sækja einhverja tíma í Mýrinni og þar fá þeir einnig aðstöðu til að taka þátt í fjartímum í Bláa hnettinum ef þeir eru inni í skóladeginum.

Nemendur í deildinni hafa aðgang að mötuneyti kl. 12:30 - 13:00.

Kennsla fer öll fram samkvæmt stundaskrá en athugið að breytingar hafa verið gerðar á kennslustofum í einhverjum tímum.

Verklegir áfangar á brautunum sem Arnar kennir verða kenndir í staðnámi. Einnig munu Hafliði og Viðar kenna sína áfanga í staðnámi. 

Jón Valgeir mun kenna áfanga í vélstjórn í staðnámi . Vélfræði og hönnun skipa mun hann kenna í fjarnámi í gegnum Bláa hnöttinn. 

Almennir áfangar eins og stærðfræði, enska, íslenska, danska, hreyfing, lífsleikni o.s.frv. verða kenndir i fjarnámi í gegnum Bláa hnöttinn.

Nemendur að mæta stundvíslega í alla tíma á Bláa hnettinum. Upplýsingar fyrir hvern áfanga verða aðgengilegar á Kennsluvef (https://moodle.va.is/ ) en þaðan fara nemendur inn í Bláa hnöttinn. Ef nemendur lenda í vandræðum með að komast inn á hnöttinn er mikilvægt að þeir hafi samband við kennara og/eða Viðar kerfisstjóra, vidar@va.is .

Ef nemendur lenda í vandræðum með að komast inn á hnöttinn er mikilvægt að þeir hafi samband við kennara og/eða Viðar kerfisstjóra, vidar@va.is .