RAF 103 Rafmagnsfræði

RAF 103

Undanfari enginn
Kenndur samhliða MÆR 102
Jafnstraumsfræði. Grundvallarhugtök rafmagnsfræðinnar, rafhleðsla, viðnám leiðara, áhrif hitabreytinga á viðnám, tengingar viðnáma, Ohms-lögmál, lögmál um afl og orku, lögmál Kirchoffs. Íspenna og spennugjafar. Straum-, spennu-, viðnáms- og aflmælar. Áhersla er lögð á stærðfræðileg og skipuleg vinnubrögð við lausn verkefna með formúluútreikningi.