VST312

VST312 Vélstjórn

Undanfarar: VST304, STI103

Í þessum áfanga annast nemendur allan daglegan rekstur vélarrúms frá stjórnstöð, sinna bilanagreiningu og nýta sér upplýsingar frá framleiðendum, afgasvakanum og viðvörunarkerfinu til að tryggja öruggan rekstur vélarrúmsins. Í áfanganum er kennd öll undirstaða við notkun hermis, ræsing á öllum búnaði vélarrúmsins og rekstur þess með hjálp viðvörunarkerfa. Í lok áfangans eru teknar fyrir gangtruflanir og bilanagreining.