Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina

Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina (GNB) – 32 einingar

Meginmarkmið grunnnáms bygginga- og mannvirkjagreina er að veita nemendum sýn á atvinnugreinina og störf innan hennar. Lögð er áhersla á kennslu undirstöðuatriða í efnisfræði, áhalda- og tækjafræði, teikningum, verktækni og vinnuvernd. Í lok grunnnámsins eiga nemendur að vera hæfari til að velja sér sérsvið innan bygginga- og mannvirkjaiðnaðar og hafa fengið faglegan grunn til að byggja áframhaldandi nám á.  Námið er ein önn en síðan tekur við sérhæfing í þeirri byggingagrein sem nemendur velja.

Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.

Nám á brautinni er ein önn, alls 32 einingar. Til að standast námsmat í áfanga þarf lágmarkseinkunnina 5.

Námsgrein              
     
F-EIN
Grunnteikning GRUN 1FF04   4
Trésmíði TRÉS 1SL06  1AB01 7
Efnisfræði EFRÆ 1BV05   5
Framkvæmd og vinnuvernd FRVV 1SR03   3
Stærðfræði STÆR 2BR05   5
Íslenska ÍSLE 2SG05   5
Lífsleikni LÍFS  1HN02    2
Hreyfing HREY  1AI01(A)    1

 

 

 Alls f-einingar 

 

32