Nemendaþjónusta

Nemendaþjónusta VA samanstendur af þeim Guðnýju, náms- og starfsráðgjafa (guðnybjorg@va.is) og Unni Ásu, áfangastjóra (unnurasa@va.is). Þjónustan samanstendur af náms- og starfsráðgjöf og aðstoð er varðar námsframboð skólans. Nemendaþjónustan hefur einnig það hlutverk að fylgjast með nemendum og líðan þeirra og aðstoða við allt sem við kemur náminu.

Þjónustan hefur verið gerð enn sýnilegri en áður þar sem hægt er að finna nemendaþjónusta á samfélagsmiðlum.

Nemendaþjónustan - Facebook

Nemendaþjónustan - Instagram

Skipulag

Tímastjórnun/Sjálfsstjórnun

Við stjórnum ekki tímanum en við getum stjórnað því hvernig við notum hann. Tímastjórnun snýst því um sjálfsstjórn eða sjálfsaga. Margt er hægt að gera til að nýta tíma sinn betur og tilgangurinn með tímaskipulagi er að ná að sinna bæði skyldunum og frítíma (hvíld, tómstundir ..). Það er nauðsynlegt að sinna hvoru tveggja og það kemur okkur í koll ef við verjum of miklum tíma í annað hvort.

Hér fyrir neðan eru eyðublöð sem eru gagnleg við tímaskipulag og hér fyrir neðan er útskýring á því hvernig hægt er að nota eyðublöðin. Pappírsformið stendur ennþá fyrir sínu en fjölmörg gagnleg forrit og smáforrit eru líka til. Finndu út hvað hentar þér með því að prófa ýmislegt.

Markmið: Markmið eru upphaf og endir alls sem við gerum. Mikilvægt er að þú vitir til hvers þú ert að gera það sem þú gerir og hvert þú stefnir. Settu þér markmið í upphafi annar og skoðaðu þau aftur í lok annar. Skrifaðu þau niður og hafðu þau skýr, tímasett og viðráðanleg. Hengdu þau upp á vegg eða inn í persónumöppu sem inniheldur persónuleg gögn um þig og viðkoma námi, störfum og reynslu. Þú byrjar á að gera langtímamarkmið og síðan skammtímamarkmið en þau leiða þig að langtímamarkmiðinu. Þú ræður hversu langt fram í tímann þessi markmið ná en passaðu að rifja markmiðin reglulega upp. Hvenær ársins skoðar þú þín markmið og hversu oft á ári?

Mánaðaráætlun: Yfirlit yfir hvern mánuð. Þar skrifarðu inn próf, verkefna- og ritgerðaskil fyrir alla önnina en upplýsingarnar eru á kennsluáætlun sem þú færð í upphafi annar. Skráðu líka annað mikilvægt sem tengist námi, vinnu og einkalífi. Þetta er einnig gott yfirlit á prófatímabili til að skipuleggja próflesturinn. Mikilvægt er að hengja þetta upp á vegg eða setja fremst í aðalmöppu.

September 2020

Október 2020

Nóvember 2020

Desember 2020

Janúar 2021

Febrúar 2021

Mars 2021

Apríl 2021

Maí 2021

Vikuáætlun: Með henni geturðu skipulagt eina viku í einu. Til að byrja með er gagnlegt að skrá jafnóðum í eina viku í hvað tíminn fer. Þá skráirðu t.d. á kvöldin eða yfir daginn hvað þú ert að gera og eftir vikuna telurðu saman helstu flokkana (t.d. skóli, heimanám, æfingar, vinna, fjölskylda, hvíld, vinir, tómstundir ...). Þú metur síðan hvort þú ætlar að verja meiri eða minni tíma í hvern flokk. Þarna sérðu líka tímaþjófa. Hverjir eru þeir og hvað ætlarðu að gefa þeim mikinn/lítinn tíma?

Að þessu loknu skaltu fylla út eina viku fram í tímann og byrja á atriðum sem hafa fasta tímasetningu; skóli, æfingar, vinna. Síðan seturðu inn annað eftir mikilvægi og í því magni sem þú stefnir að; svefn, matartími, fjölskylda, heimavinna, tómstundir, aðrar skyldur, ...).

Að lokinn hverri viku endurskoðar þú áætlunina og betrumbætir. Er kannski betra að læra á öðrum tíma, þarftu að taka styttri eða lengri námslotur? Mundu að mikilvæg atriði fyrir námsmenn eru súrefni, næring, félagsskapur, hreyfing, hlátur og hvíld auk næðis til að læra).

Hér er Vikuáætlun til útprentunar

Skipulag í prófum: Á prófatíma er enn mikilvægara að skipuleggja sig. Best er að skipuleggja próflestur og upprifjun fyrirfram því annars fer mikill tími að morgni í að hugsa um á hverju þú átt að byrja. Hér fyrir neðan er slóð að vikuáætlun til að prenta og hana geturðu notað til að ákveða hvenær þú lest fyrir hvert próf, hvenær þú borðar, hvílir þig, ferð í sund eða aðra hreyfingu og slökun og hvenær þú ferð að sofa:

Til útprentunar: Vikuáætlun í próflestri.

Verkefnayfirlit: Sumum finnst gott að hafa yfirlit á einu blaði yfir allt nám í öllum áföngum. T.d. gott fyrir foreldra. Þar kemur fram hvaða ritgerðum, verkefnum, skyndiprófum eða öðru þarf að ljúka í hverjum áfanga. Mikilvægt er að þetta sé uppi á vegg því blöð vilja gleymast ofan í skúffum og töskum. Einnig er gott að skrifa þetta í dagbókina.