Smáskipanám - skipstjórn <15m

Stefnt er á að nýr hópur fari af stað Vor 2025 í kennslu í Smáskipanámi - Skipstjórn <15m.  

Fyrirkomulag kennslu

Fyrirkomulagið verður í formi fjar-og lotunáms. Hluti náms verður í fjarnámi en nemendur munu þurfa mæta í 3-4 helgarlotur sem verða auglýstar þegar fjöldi nemenda og skipulag lotna liggja fyrir. 

Innihald kennslu

Kennt verður samkvæmt nýrri námskrá

Náminu er skipt í nokkra námsþætti sem allir mynda eina heild til þessara rétt­inda, m.a. sigl­ingafræði, sigl­ing­a­reglur, sigl­inga­tæki, hönnun skipa, stöðugleika, sigl­inga­hermi, fjar­skipti (ROC skír­teini), sjórétt, veðurfræði og viðhald vél­búnaðar.

Smá­skipanám (skip­stjórn <15m) kemur í stað þess sem áður var 30 brl rétt­indanám (punga­próf) og und­an­farin ár kallast 12 m nám. 

Atvinnu­skír­teini er gefið út að loknum sigl­inga­tíma og örygg­isfræðslu. Þeir sem ljúka smá­skipa­prófi geta tekið verk­legt skemmti­báta­próf og öðlast þar með einnig skemmti­báta­rétt­indi á 24 metra skemmti­báta.

Nám­skeiðið sam­svarar 18 ein­inga námi í fram­halds­skóla (rúm­lega hálfri önn). Því má gera ráð fyrir að um 330-430 klst fari í námið sam­kvæmt viðmiði fyrir fram­halds­skóla­nem­endur.

Útgáfa atvinnuskírteinis

Til þess aða fá útgefið atvinnuskírteini að loknu <15m námi, þarf að leggja fram staðfestan siglingatíma í eitt ár (átta mánuði), vottorð um heilsufar (sjón) og að viðkomandi sé orðin 18 ára og hafi lokið námskeiði í öryggisfræðslu hjá Slysavarnarskóla sjómanna, eða öðrum viðurkenndum aðila. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Samgöngustofu.

 

Inntökuskilyrði

Inntökuskilyrði miðast við að nemendur hafi lokið grunnskólaprófi og séu a.m.k. 16. ára þegar þeir hefja nám.  Ekki e rþó hægt að sækja um skirteini hjá Samgöngustofu fyrr en 18 ára.

Nemendastundir: 360

Verð á námi: 320.000.- (Námskeiðsgjöld eru óafturkræf)

 

Verkmenntaskóli Austurlands áskilur sér rétt til þess að aflýsa námskeiðinu ef þátttaka er dræm.

Hægt er að sækja um námið á umsóknavef