Þorvaldur Jón Andrésson útskriftarnemi í húsasmíði flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema ásamt Hafrúnu Kötlu Aradóttur útskriftarnema af opinni stúdentsbraut.
Fyrr í dag fór fram brautskráning frá Verkmenntaskóla Austurlands í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði. Brautskráningin var með hefðbundnu sniði og var salurinn þétt setinn af gestum en athöfninni var einnig streymt á youtube rás skólans.
Alls brautskráðust 48 nemendur af 12 námsbrautum en það er lýsandi fyrir hið fjölbreytta námsframboð skólans sem er með mesta móti þetta skólaárið.
Athöfninni stýrði Guðný Björg Guðlaugsdóttir áfangastjóri og komu nemendur að auki að virkum hætti að dagskránni. Athöfnin var frjálsleg og fjölbreytt og var hátíðleikinn í fyrirrúmi enda sannkallaður hátíðardagur.
Petra Lind Sigurðardóttir aðstoðarskólameistari Verkmenntaskóla Austurlands setti brautskráningarathöfnina með hátíðlegri ræðu þar sem komið var víða við. Í ræðu sinni fjallaði hún meðal annars um fjölbreyttan hóp útskriftarnema og ólíkar leiðir þeirra að þessum mikilvæga áfanga. Hún lagði áherslu á mikilvægi þrautseigju, þess að gefast ekki upp og þann styrk sem felst í því að þora að hefja nám á ný eða feta nýjar slóðir. Mikilvægi þess að líta á menntun sem vegvísi en ekki endastöð. Petra kom einnig inn á öfluga þátttöku skólans í erlendu samstarfi og tækifæri nemenda til þess að vaxa og dafna utan hefðbundinnar kennslustofu. Í lok ræðunnar minnti hún á mikilvægt hlutverk VA í samfélaginu á Austurlandi og að styrkleiki skólans fælist ekki síst í nándinni, persónulegri þjónustu og öflugu skólasamfélagi þar sem hver og einn nemandi skiptir máli.
Þórður Vilberg Guðmundsson flutti ávarp fyrir hönd skólanefndar VA en hann útskrifaðist einmitt af félagsfræðibraut við VA árið 2006. Þórður Vilberg hafði orð á því hversu þéttur starfsmannahópur VA væri ásamt mikilvægi skólans í samfélaginu okkar. Hann kom einnig inn á fyrirætlanir ríkisins hvað byggingu nýs verknámshúss varðar en því miður hefur verið fátt um svör varðandi þær fyrirætlanir þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hans og skólameistara til að eiga samtal við stjórnvöld um málið.
Tvær ræður voru fluttar af nemendum, en það voru þau Þorvaldur Jón Andrésson útskriftarnemi í húsasmíði og Hafrún Katla Aradóttir útskriftarnemi á opinni stúdentsbraut sem fluttu ávarp fyrir hönd nemenda. Í ræðu sinni fór Hafrún Katla yfir það hvernig skólinn hefur mótað hana að mörgu leyti og nefndi í því samhengi að viðburðir utan skólastofunnar væru ekki síður mikilvægir en hið hefðbundna nám. Hún minntist einnig á að hún hafi nú ekki alveg skilið hversvegna skólameistari hafi leitað til sín þegar óskað var eftir ræðu frá nemenda en sagði jafnframt að það væri einmitt það sem skólagangan í VA hefði kennt henni síðastliðin ár, að ýta henni áfram í að takast á við allskonar aðstæður. Þorvaldur Jón var með stutta og hnyttna ræðu, kom inn á mikilvægi þess að hafa haft góða félaga sér við hlið á skólagöngunni enda kynnst mörgu fólki sem gerði námið auðveldara og skemmtilegra. Einnig ræddi hann kosti þess að vera í litlum og persónulegum skóla.
Pjetur St. Arason flutti ávarp fyrir hönd starfsfólks eins og venjan er við brautskráningu. Pjetur byrjaði ávarpið á að syngja gamlan skólasöng VA og hvatti starfsfólk og nemendur skólans til að halda söngnum á lofti á afmælisári skólans en í þetta sinn fór 40. Brautskráning skólans fram og fagnar skólinn 40 ára afmæli á árinu.
Við lok athafnar flutti loks skólameistari VA, Birgir Jónsson kveðjuorð til útskriftarnema þar sem hann m.a. þakkaði útskriftarnemendum fyrir að velja VA. Hann lagði áherslu á það til útskriftarnema að vera ávallt óhrædd við að taka ákvarðanir og leyfa sér að skipta um skoðun svo lengi sem það sem verður fyrir valinu í lífi og starfi muni veita nemendum hamingju.
Það var Þór Theódórsson nemandi við VA sem sá um tónlistarflutning dagsins ásamt fyrrum nemanda skólans Júlíusi Óla Jacobsen sem sá um undirspilið. Fluttu þeir saman þrjú lög, Vor í Vaglaskógi eftir Jónas Jónasson við texta eftir Kristján frá Djúpalæk, lagið Stingum af eftir Mugison og að lokum lagið Ég veit þú kemur eftir Oddgeir Kristjánsson við texta Ása í bæ sem Þór flutti á eftirminnilegan hátt í leiksýningunni Þrek og tár á vegum skólans fyrr í vetur.
Að venju voru veittar viðurkenningar til nemenda sem hafa skarað fram úr í námi og starfi skólans. Eftirfarandi nemendur hlutu viðurkenningar í dag:
Andri Hrannar Magnússon fyrir mjög góðan námsárangur í húsasmíði
Anna María Sigurðardóttir fyrir þáttöku í erlendu samstarfi.
Arnar Jacobsen fyrir þáttöku í erlendu samstarfi.
Brynja Sif Gísladóttir fyrir góðan námsárangur í sjúkraliðagreinum.
Eyvör Rán Ívarsdóttir fyrir þáttöku í erlendu samstarfi auk verðlauna fyrir framúrskarandi árangur í húsasmíði.
Finnur Örn Ómarsson fyrir þáttöku í erlendu samstarfi.
Freyr Sveinsson Zoéga fyrir þáttöku í erlendu samstarfi og fyrir þátttöku í gettu betur liði skólans í 2 ár
Hafrún Katla Aradóttir fyrir þáttöku í erlendu samstarfi og fyrir þátttöku í umhverfisnefnd VA s.l. 3 ár. Að auki hlýtur hún viðurkenningu fyrir góðan námsárangur á stúdentsprófi ásamt menntaverðlaunum Háskóla Íslands.
Hafsteinn Jökull Þorgeirsson fyrir þáttöku í erlendu samstarfi.
Hrefna Ágústa Marinósdóttir fyrir þáttöku í erlendu samstarfi og félagsstörfum á vegum skólans.
Jóhanna Dagrún Daðadóttir fyrir þáttöku í erlendu samstarfi og fyrir þátttöku í gettu betur öll þrjú árin ásamt því að vera í umhverfisnefnd VA.
Júlíus Laxdal Pálsson fyrir þáttöku í erlendu samstarfi ásamt verðlaunum fyrir góðan námsárangur í B stigi vélstjórnar.
Magnús Ari Guðmundsson fyrir þáttöku í erlendu samstarfi.
Pálmi Kristjánsson fyrir þáttöku í erlendu samstarfi auk verðlauna fyrir góðan námsárangur í rafvirkjun.
Ragnar Sölvi Einarsson fyrir þátttöku í félagsstörfum á vegum skólans.
Þorvaldur Jón Andrésson fyrir þátttöku í félagsstörfum á vegum skólans.
Vilji Dagur Davíðsson fyrir þátttöku í félagsstörfum á vegum skólans.
Ár hvert gefur Sjúkraliðafélag Austurlands sjúkraliðum í hópi brautskráningarnema lykil og rós frá félaginu. Í ár brautskráðust 3 nemendur úr sjúkraliðanámi og fengu þau lykil og rós ásamt því að vera boðin velkomin í hóp sjúkraliða.
Við lok brautskráningarinnar sungu útskriftarnemar, starfsfólk og gestir saman lagið Sumarkveðja eins og venjan er í brautskráningu skólans. Það var Margrét Perla Kolka Leifsdóttir sem leiddi sönginn við undirspil Júlíusar Óla. Að formlegri dagskrá lokinni bauð skólinn gestum í kaffi og konfekt og að því loknu fóru útskriftarnemar einn af öðrum með fjölskyldum sínum og aðstandendum.
Starfsfólk Verkmenntaskóla Austurlands óskar nemendum og fjölskyldum þeirra til hamingju með áfangann.
Fleiri myndir munu bætast hér inn á heimasíðuna á næstu dögum.