Afsláttur af skólabókum hjá IÐNÚ

VA er einn af aðildarskólum og fær þess vegna þetta góða tilboð. Tilboðið gildir bæði í verslun IÐNÚ, Brautarholti 8 og í vefverslun. Sendingarkostnaður er felldur tímabundið niður af öllum pöntunum í gegnum vefverslun (idnu.is). 

Að þessu sinni gildir afslátturinn og niðurfellingin á sendingarkostnaðnum 2.-17 janúar. Ef verslað er í Brautarholti 8 þá er nóg að framvísa auglýsingunni sem er hér með sem mynd. Ef verslað er á www.idnu.is þá þarf að slá inn afsláttarkóðann: vor2020 inn í reitinn ,,Nýta afsláttarmiða“.

Einnig er hafin sala á fyrstu gagnvirku vefbókum IÐNÚ eftir að þær voru tilraunakenndar í nokkrum skólum. Þannig hafa rúmlega 400 nemendur þegar notað bækurnar til kennslu og viðbrögðin frá þeim eru afar jákvæð.  Hægt er að kynna sér þetta frekar og kaupa bækurnar hér: https://vefbok.is/