Upplýsingar um skólabyrjun

Kæru nemendur og forsjáraðilar

Nú fer skólastarfið loksins að hefjast aftur eftir sumarleyfi. Föstudaginn 18. ágúst munum við bjóða nýnema velkomna í skólann og setja skólann formlega.

Skipulagið fyrstu dagana er svona:

  • 18. ágúst, föstudagur
    • Opnað verður fyrir stundatöflur að morgni
        • Opið er fyrir töflubreytingar frá 21. ágúst til 5. september.
    • Nýnemadagur
    • Skólasetning
      • Skólasetning verður kl. 11:30-11:45 í matsal í bóknámshúsi. Við bjóðum alla nemendur velkomna á skólasetningu!
  • 20. ágúst, sunnudagur
  • 21. ágúst, mánudagur
    • Kennsla hefst samkvæmt stundatöflum.
  • 22. ágúst, þriðjudagur
    • Dreifnám hefst með fundi fyrir dreifnema kl. 17:00. Að því loknu hefst dreifnám samkvæmt skipulagi.

Nemendur hafa fengið aðgang að tölvukerfum skólans en þurfa að virkja aðganginn. Hér má finna leiðbeiningar hvernig það er gert.

Kær kveðja,

skólameistari