Valtímabil fyrir haustönn 2020 hafið

Eins og gefur að skilja verður val fyrir haustönn 2020 með töluvert öðru sniði en venjulega. Valið fer fram í gegnum INNU dagana 27. mars-3. apríl.

Hér má finna myndband hvernig valið er í gegnum INNU. 

Ef þið eruð ekki viss á hvaða áfangar eru í boði eða hvað á að velja eftir því hvaða námsbraut þið eruð á þá smellið þið hér.

Athugið að þið getið haft samband við Guðnýju námsráðgjafa (gudnybjorg@va.is) og Karen aðstoðarskólameistara (karen@va.is) til að fá aðstoð við valið.