Verkleg fjarkennsla í háriðn

Kennarar í framhaldsskólum deyja svo sannarlega ekki ráðalausir. Hér er Rósa Dögg, kennari í háriðn, að leiðbeina nemanda sínum í herraklippingum í gegnum Bláa hnöttinn. Allt er mögulegt fyrir hugmyndaríka og lausnamiðaða kennara og nemendur framhaldsskólans.

Hér má sjá myndbandsbrot úr kennslustundinni.

Kennarar og nemendur framhaldsskóla eiga lof skilið fyrir allar lausnirnar sem upphugsaðar hafa verið undanfarið! Áfram þið!